hvað ég virðist lítið nenna að pikka hingað inn, eða á nokkra aðra síðu ef því er að skipta. Hef þó verið að tala smá slurk á huga þessa fyrstu daga ársins.
Sem minnir mig á...
GLEÐILEGT ÁR!!!
og takk fyrir það liðna
Ég held að árið 2007 hafi nú bara verið þó nokkuð viðburðaríkt hjá mér, en meðal þess helsta sem gerðist á síðasta ári má nefna:
- skipti um námsgrein í háskólanum
- gerðist héraðsdómari í handbolta
- síðar landsdómari um haustið
- sigldi með Herjólfi í fyrsta skipti á ævinni
- á spegilsléttum sjó í þokkabót!
- fór á mitt fyrsta Shellmót í knattspyrnu
- og það sem dómari

- dæmdi á Reycup þriðja árið í röð
- eyddi meirihluta sumarsins á hellisheiðinni, nánar til tekið við hellisheiðarvirkjun
- flutti úr vesturbæ Reykjavíkur í suðurbæ Hafnarfjarðar
- og líkar vel í firðinum

- komst í hóp landsdómara KSÍ í nóvember
Þannig að nóg hefur verið um að vera á síðasta ári og eru örugglega miklu, miklu fleiri atriði sem ég er að gleyma heldur en þau sem ég nefni 
Framundan á nýju ári er svo enn meiri skóli, dómgæsla í handbolta og fótbolta, vinna í sumar og svo Flórída í vor
Sem verður ekkert annað en snilld 
En ég ætla að láta þetta nægja í bili, reyni að vera duglegri þetta árið... hopefully 
Andri