Ég er nú steinhlessa á þessu
ástandi... hvernig stendur eiginlega á því að ég er ekki að
nenna að skrifa nokkuð hingað inn í fleiri, fleiri mánuði? Ég
skil bara ekkert í þessu 
Engi að síður þá er orðið alltof langt síðan ég aulaðist til þess
að skrifa eitthvað hingað inn og þar af leiðandi ætti að vera nóg
til að greina frá... spurning samt hversu samviskusamur ég verð í
þeim efnum 
Frá því í byrjun júní hef ég nú aðallega
verið að vinna uppi við Hellisheiðarvirkjun og uni mér vel þar. Hef
þó tekið nokkrar aukavaktir (alveg heilar 3) á öðrum stöðum, var
til að mynda í flugskýli LHG um helgina, sem mér fannst bara
þrælfínt. Samhliða vinnunni hefur svo verið fótboltinn, eins og svo
oft áður, og hef ég haft nóg að gera á þeim bænum.
Síðustu helgina í júní fór ég á mitt
fyrsta Shellmót, sem er haldið árlega í Vestmannaeyjum
Ég
skemmti mér mjög vel þá helgina, veðrið var æðislegt (þessi litli
rigningarúði á laugardagsmorgninum var í raun bráðnauðsynlegur til
að vega aðeins uppá móti allri sólinni), mótið gekk vel og bara
frábært að fylgjast með strákunum spila. Ég stend fastur á þeirri
skoðun minni að þetta sé það skemmtilegasta sem ég hef gert á mínum
dómaraferli 
Svo sakaði ekki að komast í golf eftir að boltanum lauk á daginn,
stórskemmtilegur völlur úti í Eyjum 
Í júlílok var svo komið að Rey Cup
þriðja árið í röð hjá mér, þó ég hafi nú reyndar orðið fyrir smá
vonbrigðum þegar ég komst að því að vinur minn hann Dermot
Gallagher kæmi ekki aftur (þrátt fyrir að hafa sagst ætla að snúa
aftur í ár, hans síðasta starf sem dómari), en það þýðir ekkert að
gráta það. Enn og aftur var frábært veður, þvílík sól og steikjandi
hiti á laugardaginn (komst bara ekki á fimmtudeginum og
föstudeginum...) og svo langþráð léttrigning á sunnudeginum
Ekki
skemmdi svo fyrir að eftir síðasta leikinn á sunnudeginum (sem ég
bættist við á á síðustu stundu, algjör redding) fékk ég að hitta
forseta UEFA (knattspyrnusamband Evrópu), Michel Platini, sem
afhenti háttvísisverðlaunin á Rey Cup 2007. Ég hef víst alveg efni
á því að vera pínu montinn núna 
Þá má ég alls ekki gleyma því að hafa í
fyrsta skipti keypt nýjustu bókina um Harry Potter örfáum mínútum
eftir að sala á henni hófst
Og nei... ég sat ekki í 12 tíma
til þess að bíða eftir bókinni 
Ég var búinn að koma mér austur þar sem ég átti að fara að dæma 3.
deildarleik í Vestmannaeyjum þetta kvöld (þ.e. 21. júlí) en sökum
þvílíkrar svartaþoku komst ég ekki til Eyja (var mjög feginn því að
hafa ekki komist út, í stað þess að komast út og svo ekki heim) og
hélt því aftur heim til mömmu og pabba og dró litla bróður bara út
á golfvöll í staðinn
Svo frestaði ég ferðinni í bæinn þangað til
rétt rúmlega 11 um kvöldið (salan byrjaði kl. 23:01) og ákvað að
taka sénsinn á því að koma við í Office1 á Selfossi, fyrst það yrði
opið þar. Og viti menn, þar var opið og EKKERT að gera þegar ég
leit við kl. 23:10
Ég labbaði inn og út á rétt rúmlega
mínútu, með nýjustu (og síðustu) Harry Potter bókina í höndunum
ásamt fullt af einhverju aukadóti, sem fylgdi með bókinni fyrsta
daginn...
Bókina las ég svo á viku, þar sem ég vildi ekki vera alltof
snöggur með hana, hefði alveg getað verið fljótari, en vildi njóta
lestursins
Frábær bók, en mun ekki segja meira hér... gæti komið
mér í klandur svona skömmu eftir að bókin kom út 
Núna er ég hins vegar að koma mér í það
að lesa á fullu, eða réttara sagt læra á fullu, enda nokkur
sumarpróf framundan 
Þar til næst, auf wiedersehen
