Er það? Þú segir nokkuð...

19.04.2008 02:09:51 / Andri

Jæja... komið gott!

Ég hef, eftir talsverða umhugsun, ákveðið að færa mig um set af blogcentral-kerfinu sem er eiginlega orðið barn síns tíma núna, auk þess að breytingarnar í ársbyrjun hafa ekki lagst vel í mig.
Því er komið nýtt blogg á svæði keppinautarins og er slóðin þangað http://andriv.blog.is/ þar sem vonandi verða reglubundnari skrif heldur en hér á þessu bloggi, að minnsta kosti síðustu mánuðina...

Ég vonast til þess að þeir sem álkast hingað inn rambi yfir á nýju síðuna líka :)

Andri


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.02.2008 01:29:22 / Andri

Alltaf á flakki?

Það er alveg naumast hvað ég get skotist landshorna á milli, og það bókstaflega!
Bara núna í febrúar er ég búinn að fara norður á Akureyri og suður til Vestmannaeyja, með flugi í bæði skiptin 8) og til að toppa það, í bæði skiptin til þess að dæma handboltaleik (og meira að segja í sömu keppni í sama flokki).
Fór sem sagt til Vestmannaeyja í gær (tæknilega í fyrradag þar sem það er tæknilega föstudagur þegar ég skrifa þetta) og dæmdi þar undanúrslitaleik í unglingaflokki karla. Eini gallinn við ferðina, þannig séð, var að við dómararnir þurftum að fara með morgunfluginu frá Reykjavík til Eyja, sem var kl. 9. Leikurinn sjálfur var svo ekki fyrr en hálf 4 um daginn... einstaklega skemmtilegt, en ég hafði þó vit á því að hafa fartölvuna mína með mér til Eyja, þannig að ég gat eytt einhverju af tímanum í tölvunni. Annars gekk sá leikur bara ágætlega fyrir sig og við komumst, blessunarlega, aftur heim eftir leikinn, en heimamenn voru eitthvað að reyna að hræða okkur með slæmri veðurspá fyrir seinnipart dagsins :klikk:

Þá fór ég til Akureyrar þann 13. febrúar til að dæma leik í fjórðungsúrslitum unglingaflokks karla, háspennuleik Þórs og Fram sem var í járnum frá upphafi til enda og bráðfjörugur leikur í alla staði. Það var í heildina ágætis ferð og hægt að skemmta sér í höfuðstað norðurlands.

Það hefur s.s. verið nóg að gera í dómgæslunni, eiginlega of mikið... og talandi um það, þá er landsdómararáðstefna í fótboltanum á laugardaginn (eða morgun, þið vitið, tæknilega séð) sem á eftir að vera fróðleg og skemmtileg :)

Ætla að láta þetta gott  heita í bili, þar til næst ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.01.2008 23:43:27 / Andri

Það er alveg merkilegt...

hvað ég virðist lítið nenna að pikka hingað inn, eða á nokkra aðra síðu ef því er að skipta. Hef þó verið að tala smá slurk á huga þessa fyrstu daga ársins.

Sem minnir mig á...

GLEÐILEGT ÁR!!!
og takk fyrir það liðna ;)

Ég held að árið 2007 hafi nú bara verið þó nokkuð viðburðaríkt hjá mér, en meðal þess helsta sem gerðist á síðasta ári má nefna:

  • skipti um námsgrein í háskólanum
  • gerðist héraðsdómari í handbolta
    • síðar landsdómari um haustið
  • sigldi með Herjólfi í fyrsta skipti á ævinni
    • á spegilsléttum sjó í þokkabót!
  • fór á mitt fyrsta Shellmót í knattspyrnu
    • og það sem dómari 8)
  • dæmdi á Reycup þriðja árið í röð
  • eyddi meirihluta sumarsins á hellisheiðinni, nánar til tekið við hellisheiðarvirkjun
  • flutti úr vesturbæ Reykjavíkur í suðurbæ Hafnarfjarðar
    • og líkar vel í firðinum :D
  • komst í hóp landsdómara KSÍ í nóvember

Þannig að nóg hefur verið um að vera á síðasta ári og eru örugglega miklu, miklu fleiri atriði sem ég er að gleyma heldur en þau sem ég nefni :haha:
Framundan á nýju ári er svo enn meiri skóli, dómgæsla í handbolta og fótbolta, vinna í sumar og svo Flórída í vor :D Sem verður ekkert annað en snilld 8)

En ég ætla að láta þetta nægja í bili, reyni að vera duglegri þetta árið... hopefully :haha:

Andri 


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 16:38:20 / Andri

Skóli, bolti og flutningar

Jæja, þá er skólinn byrjaður og verkefnavinnan komin á fullt. Þar að auki er handboltatímabilið að hefjast og verður án efa nóg að gera þar, naumast hvað maður nennir að vera að dæma svona endalaust...

Þá er fótboltinn alveg að klárast núna, bara einn leikur eftir hjá mér í haust og svo frí fram að áramótum, ja... kannski ekki alveg, geri nú ráð fyrir að vera eitthvað að dæma í innanhússboltanum í vetur, sama hvaða form verður á honum.
Þá hef ég fengið fína leiki núna í lok tímabilsins, toppslag í 1. deild karla, úrslitaleikinn í 1. deild kvenna og í landsbankadeild kvenna (reyndar óopinber úrslitaleikur, þar sem það var ein umferð eftir að þeim leik loknum). Það er svo spurning hvort maður fái svo ekki loksins hækkun upp í hóp landsdómara núna í haust :haha:

Ég held að það megi svo alveg minnast á það að ég er að fara að flytja úr vesturbænum núna um helgina og yfir í Hafnarfjörðinn (bara snilld) og kann ég bara vel við þá ákvörðun. Svo sakar ekki að eiga vini í næsta nágrenni í firðinum.

Annars er kominn tími til að halda áfram með lærdóminn. 


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.08.2007 17:15:44 / Andri

Ég skemmti mér...

Ég er nú steinhlessa á þessu ástandi... hvernig stendur eiginlega á því að ég er ekki að nenna að skrifa nokkuð hingað inn í fleiri, fleiri mánuði? Ég skil bara ekkert í þessu 8)
Engi að síður þá er orðið alltof langt síðan ég aulaðist til þess að skrifa eitthvað hingað inn og þar af leiðandi ætti að vera nóg til að greina frá... spurning samt hversu samviskusamur ég verð í þeim efnum ;)

Frá því í byrjun júní hef ég nú aðallega verið að vinna uppi við Hellisheiðarvirkjun og uni mér vel þar. Hef þó tekið nokkrar aukavaktir (alveg heilar 3) á öðrum stöðum, var til að mynda í flugskýli LHG um helgina, sem mér fannst bara þrælfínt. Samhliða vinnunni hefur svo verið fótboltinn, eins og svo oft áður, og hef ég haft nóg að gera á þeim bænum.

Síðustu helgina í júní fór ég á mitt fyrsta Shellmót, sem er haldið árlega í Vestmannaeyjum :D Ég skemmti mér mjög vel þá helgina, veðrið var æðislegt (þessi litli rigningarúði á laugardagsmorgninum var í raun bráðnauðsynlegur til að vega aðeins uppá móti allri sólinni), mótið gekk vel og bara frábært að fylgjast með strákunum spila. Ég stend fastur á þeirri skoðun minni að þetta sé það skemmtilegasta sem ég hef gert á mínum dómaraferli ;)
Svo sakaði ekki að komast í golf eftir að boltanum lauk á daginn, stórskemmtilegur völlur úti í Eyjum 8)

Í júlílok var svo komið að Rey Cup þriðja árið í röð hjá mér, þó ég hafi nú reyndar orðið fyrir smá vonbrigðum þegar ég komst að því að vinur minn hann Dermot Gallagher kæmi ekki aftur (þrátt fyrir að hafa sagst ætla að snúa aftur í ár, hans síðasta starf sem dómari), en það þýðir ekkert að gráta það. Enn og aftur var frábært veður, þvílík sól og steikjandi hiti á laugardaginn (komst bara ekki á fimmtudeginum og föstudeginum...) og svo langþráð léttrigning á sunnudeginum :D Ekki skemmdi svo fyrir að eftir síðasta leikinn á sunnudeginum (sem ég bættist við á á síðustu stundu, algjör redding) fékk ég að hitta forseta UEFA (knattspyrnusamband Evrópu), Michel Platini, sem afhenti háttvísisverðlaunin á Rey Cup 2007. Ég hef víst alveg efni á því að vera pínu montinn núna 8)

Þá má ég alls ekki gleyma því að hafa í fyrsta skipti keypt nýjustu bókina um Harry Potter örfáum mínútum eftir að sala á henni hófst :haha: Og nei... ég sat ekki í 12 tíma til þess að bíða eftir bókinni :D
Ég var búinn að koma mér austur þar sem ég átti að fara að dæma 3. deildarleik í Vestmannaeyjum þetta kvöld (þ.e. 21. júlí) en sökum þvílíkrar svartaþoku komst ég ekki til Eyja (var mjög feginn því að hafa ekki komist út, í stað þess að komast út og svo ekki heim) og hélt því aftur heim til mömmu og pabba og dró litla bróður bara út á golfvöll í staðinn :D Svo frestaði ég ferðinni í bæinn þangað til rétt rúmlega 11 um kvöldið (salan byrjaði kl. 23:01) og ákvað að taka sénsinn á því að koma við í Office1 á Selfossi, fyrst það yrði opið þar. Og viti menn, þar var opið og EKKERT að gera þegar ég leit við kl. 23:10 :haha: Ég labbaði inn og út á rétt rúmlega mínútu, með nýjustu (og síðustu) Harry Potter bókina í höndunum ásamt fullt af einhverju aukadóti, sem fylgdi með bókinni fyrsta daginn...
Bókina las ég svo á viku, þar sem ég vildi ekki vera alltof snöggur með hana, hefði alveg getað verið fljótari, en vildi njóta lestursins ;) Frábær bók, en mun ekki segja meira hér... gæti komið mér í klandur svona skömmu eftir að bókin kom út :haha:

Núna er ég hins vegar að koma mér í það að lesa á fullu, eða réttara sagt læra á fullu, enda nokkur sumarpróf framundan :)

 

Þar til næst, auf wiedersehen ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.06.2007 23:19:04 / Andri

Dvali? Held nú ekki... bara nóg að gera

Jæja, það er svo sem löngu kominn tími á nýja færslu hingað inn... enda nokkuð liðið síðan síðast. Hvað ætli hafi gerst á svona löngum tíma? Ansi margt, svo mikið er víst ;) Próftíðin gekk yfir þar sem merkilega mikið var lesið (þakka það því að hafa farið austur í rúma viku til próflesturs), svo gengu prófin yfir og fóru eins og þau fóru :haha:

Fótboltinn er kominn á fullt, enda ekki við öðru að búast. Nóg komið af leikjum eins og er og enn fleiri eftir. Það kemur sér því vel að hafa komist í gegnum blessaða þrekprófið í apríl :) Einnig er gott að vita af því að nóg er af leikjum hjá KSÍ og hjá FH, sem ég er farinn að dæma fyrir mun meira núna.

Þá er skólinn vitanlega búinn og vinnan tekin við. Þetta sumarið er ég aftur hjá Securitas, en í þetta skiptið í staðbundinni gæslu og meirihluta sumarsins verð ég staðsettur uppi á Hellisheiði, í gæslu við Hellisheiðarvirkjun. Það er fínt að vera þar, að minnsta kosti kann ég vel við mig þar ;)

Þá fór ég á vortónleika kórs Flensborgarskólans í dag, sem voru að þessu sinni nefndir Hátíðartónleikar, þar sem Flensborgarskólinn fagnar um þessar mundir 125 ára afmæli sínu. Eins og áður voru tónleikarnir frábærir, efnisskráin góð og gestaflytjendurnir, Eyjólfur og Ástríður Alda, sviku engann í salnum með frábærum og hnyttnum flutningi ;)

Meira mun ég þó ekki hósta upp úr mér að þessu sinni, þó ég gæti eflaust fundið eitthvað til að kjafta um, mín bíður vinna og leikur á morgun :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.04.2007 18:31:26 / Andri

Tímabilið að hefjast

Það hlaut að koma að því, loksins kom ég mér í það að skella inn nýrri færslu, nógu langt er orðið síðan síðast.
Og hvað hefur síðan á daga mína drifið síðan, hva? 11. mars?
Jú, straumbreytirinn fyrir fartölvuna mína gaf upp öndina þannig að ég þurfti að fara í heilmikið tölvustúss, kom sér vel að hafa keypt borðtölvu á spottprís frá Háskólanum í haust 8)

Síðast var ég nokkuð nýkominn úr dómaraprófi í handboltanum, sem ég náði auðvitað. Var svo að fá að vita að landsdómaraprófið í handboltanum verður líklegast í ágúst, þannig að maður verður kominn á fullt í handboltanum næsta vetur, fínt að afla sér inn smá aukapenings þar ;)
Fór svo núna á mánudaginn í þrekpróf hjá KSÍ, þar sem ég hef fengið að æfa með landsdómurunum þótti nú lítið mál að ég fengi að þreyta mig á þrekprófinu með þeim. Í ár var tekið upp nýtt þrekpróf, sem er öllu strangara en það gamla og erfiðara. Maður verður að æfa undir þetta, ólíkt hinu gamla. En ég komst þónokkuð klakklaust í gegnum þetta þrekpróf og uni mér vel við það :D

Páskarnir voru svo rólegir og góðirm, kvarta ekki undan neinu í sambandi við þá, gæddi mér á dýrindis páskaeggi úr smiðju Nóa Síríusar 8) Passaði þó líka uppá það að fara út að hlaupa, fann aðeins til þyngsla eftir páskaeggjaátið, enda var þetta ekki lítið egg :haha: En nóg um það ;)

Dómgæslan virðist vera mér einstaklega hugleikin, það er einhvern veginn eins og ég fái varla nóg :$ Ekki nóg með að hafa verið að dæma í fótbolta í 6 ár núna, þá er ég kominn í handboltann líka og er nóg að gera á þeim bænum líka. Alls staðar virðist vanta dómara (get í raun ekki verið hissa á því).
Ég hef verið frekar duglegur í fótboltanum í ár, dæmt fleiri leiki en árin á undan og einnig verið aðstoðardómari í stærri leikjum en áður (alltaf á uppleið) ;)
Svo eru þrír leikir framundan hjá mér núna, svona rétt fyrir prófin. Einn á föstudag, annar á sunnudag og þriðji á mánudag. Alla leikina er ég að dæma 8) og allir eru þessir leikir hörkuleikir og þarf ég að vera vel á varðbergi í þeim öllum.

Það fór samt varla framhjá neinum að það var stórbruni í miðbæ Reykjavíkur í gær. Að minnsta kosti fór það ekki framhjá mér, þar sem ég var í rólegheitunum í íbúðinni minni hérna á Stúdentagörðunum.
Rétt eftir klukkan tvö fór ég að heyra sírenuvæl sem ætlaði engan enda að taka svo ég kíkti út um gluggann og reyndi að sjá í hvaða átt allt liðið var að fara. Ég tók eftir því að allir stefndu bílarnir (sjúkrabílar og slökkviliðsbílar) í átt að miðbænum en ég gat ekki séð neitt sérstakt í gangi þar í fljótu bragði. Ég rauk því beint inná netið og fann frétt á Visir.is um að það væri kviknaði í húsi í miðbæ Reykjavíkur, nánar tiltekið Austurstræti 22 þar sem veitinga- og skemmtistaðurinn Pravda var til húsa. Um 10 mínutum síðar fór ég að taka eftir því að það var reykjarmökkur í miðbænum og var ég farinn að finna megna reykjarlykt í íbúðinni, þannig að ég brá á það ráð að loka glugganum og rifunni sem ég hef alltaf á svaladyrahurðinni og lagaðist lyktin í íbúðinni snarlega við það.
Það leið ekki á löngu þangað til ég varð var við það að bein útsending væri frá þessum bruna og þá var það orðið klárt að um stórbruna var að ræða. Ég fylgdist svo með brunanum í beinni fram til klukkan að verða 6, en þá var hafist handa við að fjarlægja þakið á Austurstræti 22. Skemmtistaðurinn Pravda verður því ekki starfræktur aftur á næstunni. Eldurinn læsti sig einnig í Lækjargötu 2 og er það hús einnig talið ónýtt (þó í betra standi þar sem það stendur enn uppi) sem er virkilega leiðinlegt í ljósi þess að eigendur hússins voru búnir að standa í miklum endurbótum og voru að klára þær þegar eldurinn gaus upp.
Það er aldrei gaman þegar það kviknar í og mikið eldhaf myndast, hvað þá þegar gömul og sögufræg hús verða eldinum að bráð. Ég hafði til dæmis ekki gert mér grein fyrir að Austurstræti 22 var áður höll Jörundar hundadagakonungs :haha: Húsið var byggt árið 1801-1802 og hafði því staðið í um 206 ár þangað til í gær.
Borgarstjóri Reykjavíkurborgar hefur þó látið það uppi að þessi götumynd verði varðveitt og húsið verður því endurreist, þó líklegast með öllu betri eldvörnum í þetta skiptið 8) Enda ætti ekki að vera mikið mál að koma fyrir einangrun og jafnvel úðakerfi ef húsið er byggt upp á nýtt frá grunni og útlitinu haldið.
En þegar reykurinn frá brunanum var sem mestur, sást mjög takmarkað ef ekki neitt í miðbæinn frá blokkinni minni, svo þykkur varð reykurinn. Ekki bætti svo úr skák að það var norðan átt í gær sem blés reykmekkinum beint í átt til háskólasvæðisins og hefur örugglega haft einhver áhrif á útbreiðslu eldsins. Hins vegar hjálpaði vindáttin slökkviliðsmönnunum að því leitinu til að þeir gátu verið að athafna sig frá Austurstræti án þess að standa inni í miðjum reyknum. Það eru kostir og gallar við allt saman.

Annars held ég að þetta sé komið ansi gott í bili, spurning um að koma sér í það að læra, maður hefur víst gott af því 8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.03.2007 00:01:48 / Andri

Héraðsdómararéttindin í handboltanum í höfn!!!

Það hefur ýmislegt verið í gangi undanfarna daga. Heilmikil umræða skapaðist í vikunni um fermingarauglýsingapésann frá Smáralindinni, þar sem fram kom sú skoðun að forsíðumyndin þætti full klámfengin (enn og aftur er klámið í umræðunni). Það kom fram á einu blogginu að sú stelling sem forsíðustúlkan er í þykir að mati þess bloggara, einstaklega klámfengin. Ég sótti loks þennan pésa í póstkassann í gær og ég get ekki skilið hvernig þessi bloggari gat fengið eitthvað klámfengið út úr þessari mynd og flestir aðrir bloggarar virðast vera á sömu skoðun og ég. Að minnsta kosti hefur verið gert umtalsvert grín að þessari færslu, en hún vakti bæði athygli og heil mikið umtal. Held þó að flestir hafi nú bara haft gaman af þessu. Fann á öðru bloggi þessa frábæru vísu:

Í mér virðist eitthvað hnig,

ást er hvergi að finna.

Viltu Guðbjörg mennta mig

milli læra þinna?

Algjör snilldarvísa, sem segir allt sem segja þarf um þetta mál 8) Bendi á bloggið þar sem vísan kemur fram til frekari lesningar (þó hún sé ekki mikil).

Það hefur lengi verið gert grín að því að konur kunni ekki að keyra og margar myndir eru á netinu þar sem bílar eru komnir í fáránlegustu stöður og oftar en ekki fullyrt að kvennmaður hafi verið undir stýri í það sinn. Ég viðurkenni það þó að ég bjóst ekki við að fá dæmi um þetta héðan frá Íslandi :haha:
Það kom frétt á mbl.is í kvöld um að bíl hafi verið bakkað uppá tré á Skólavörðustígnum! Og viti menn, það var kvennmaður undir stýri! Ég vorkenni reyndar greyinu, hún hefur ekki passað sig alveg í þetta skiptið en ég trúi ekki öðru en að hún sé ágætis ökumaður og sé ekki að lenda í neinum óhöppum að staðaldri :)

Annars fór ég ásamt Ella á handknattleiksdómaranámskeið hjá HSÍ í gærkvöldi og tókum við héraðsdómarastig þar. Námskeiðið var fínt í sjálfu sér, en við sátum bara og hlustuðum á það sem fram fór, þar sem við vorum með það allt saman á hreinu. Það kom sem sagt ekkert nýtt fram fyrir okkur. Tókum svo skriflegt próf eftir þennan rétt rúmlega klukkutíma og náðum því auðvitað.
Svo fórum við á bikarúrslitaleik karla í Laugardalshöllinni í dag, þar sem Fram og Stjarnan áttust við. Leikurinn var spennandi í byrjun en þegar leið á fyrri hálfleik fór Stjarnan að síga fram úr og náði loks 10 marka forystu í seinni hálfleik sem Framarar náðu aldrei að vinna upp.
Það setti þó ljótan svip á leikinn að nokkrum áhorfendum lenti saman við öryggisverði og upp brutust slagsmál sem trufluðu leikinn. Vonandi sést það ekki aftur hérlendis.

En það er leikur á morgun og ég ætla mér ekki að hafa þetta lengra í bili. Þar til næst 8)

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.03.2007 14:04:35 / Andri

Neðanjarðarhaf, álmiðstöð og skafrenningur á heiðinni

Ég held að það sé kominn tími til að skipta um efstu færslu hérna... enda löngu búið að blása þessa klámráðstefnu af og óþarfi að lesa meira um hana (þó svo að hótel Þórshamar í Vestmannaeyjum hafi boðið ráðstefnugestum að gista þar, en boðinu var hafnað).
Eitthvað hef ég aðeins verið að fylgjast með pólítíkinni, aldrei þessu vant, en komandi Alþingiskosningar verða forvitnilegar. Hægri-grænum fjölgar hratt þessa dagana en margir þeirra eru fastir í Sjálfstæðisflokknum þar sem ekkert hægra-grænt framboð er fyrir þessar kosningar (að minnsta kosti ekki ennþá). Eins er alltaf gaman að fylgjast með tilburðum Framsóknarflokksins, sem byrstir sig alltaf þegar nær dregur að kosningum, korteri fyrir kosningar er þetta almennt kallað, hótar stjórnarslitum og beitir öllum sínum gamalkunnu brögðum til að veiða atkvæði á síðustu stundu og vonast til að haldast í ríkisstjórn.
En nóg um það.

Rakst á skemmtilega frétt á mbl.is áðan, tengist þó meira gamla náminu (jarðfræðinni) heldur en því nýja. En hópur bandarískra jarðskjálftafræðinga heldur því fram að þeir hafi fundið stórt haf undir Austur-Asíu og liggur það helst undir Peking-borg, en þar kemur mesta frávik í skjálftamælingum fram. Einn jarðskjálftafræðinganna hefur kallað þetta frávik „Peking-frávikið" (nokkuð rökrétt), en á því svæði virðast jarðskjálftabylgjur hægja mest á sér, sem gefur vísbendingar um að vökva sé að finna undir yfirborðinu.
Þegar að svona frávik finnast í kringum eldstöðvar er oftar en ekki um kvikusöfnun að ræða, en í Austur-Asíu er ekki mikið um eldvirkni (það er, þegar talað er um Peking og nágrenni, vissulega er Japan mikið eldfjallasvæði, enda mun meiri tektóník á því svæði) og þar af leiðandi er frekar auðvelt að komast að þeirri niðurstöðu að um vatn sé að ræða. Nú á væntanlega eftir að gera frekari rannsóknir á þessu hafi, til að mynda reyna að ná sýni til að kanna seltu og aðra efnasamsetningu. Spennandi fréttir úr Austur-Asíu.

Rak augun í litla frétt á visir.is einnig í dag. Það er verið að opna álversupplýsingamiðstöð í verslunarmiðstöðinni Firðinum í Hafnarfirði í dag...
Þar á sem sagt að vera hægt að nálgast upplýsingar um fyrirhugaða stækkun álversins (sem er ekki enn búið að samþykkja) og munu starfsmenn álversins og aðrir stuðningsmenn stækkunarinnar vera á svæðinu til að upplýsa fólk.
Ég veit það vel að álverið er Hafnfirðingum mikilvægt, enda margir sem sækja þangað störf og auk þess græðir Hafnarfjarðarbær á álverinu. Þó er ég enginn talsmaður álvera en hef þó í sjálfu sér ekki það mikið á móti því að álverið verði stækkað, en mér finnst það ekki verða að gerast strax. Sérstaklega ekki ef sökkva þarf landi á bökkum Þjórsár og reka í burtu bændur til þess! Frekar vil ég gefa þessu nokkur ár og veita þeim frekar rafmagn frá jarðvarmavirkjunum (djúpborunarverkefnið lofar góðu). Veit þó um marga sem eru algjörlega á móti bæði stækkun álversins og þessara fyrirhugaðra virkjana í neðri-Þjórsá, en um leið veit ég um nokkra sem styðja stækkun álversins (viðurkenni það alveg að persónulega veit ég um fleiri sem eru á móti stækkun, kannski það hafi eitthvað með námið að gera?).

Skrapp svo austur í gær í smá heimsókn til foreldranna, en mamma vildi endilega að ég byði Svönu vinkonu minni í mat. Kom mér aðeins á óvart að það var nokkuð hvítt yfir fyrir austan fjall (þó mest á Hellisheiðinni og í inngötum á Selfossi). Kvöldið var fínt, góður matur (eins og alltaf heima) en við vorum þó farin aftur í bæinn um hálf tíu. Ferðin í bæin var smá ævintýraferð, þar sem það var talsverður skafrenningur á heiðinni og snjókoma og um stund var ég ekki alveg viss um hvar vegurinn var nákvæmlega :haha: En við komumst þó heilu og höldnu í bæinn.

Stefni þó ekki á aðra slíka ævintýraför í dag, enda meiri rólegheit framundan. Þó bíður mín lestur og verkefnavinna... kannski maður fari að koma sér af stað 8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.02.2007 15:56:43 / Andri

Besta ævikvöldið?

Ég minntist síðast á ráðstefnu sem á að fara fram hér í Reykjavík aðra helgina í mars, svokallað Snowgathering, þar sem hittast ýmsir aðilar úr netklámbransanum aðallega til að skemmta sér og skoða landið. Um svipað leiti og ég minntist á þetta fór af stað mikil umræða um þetta þegar Stígamótakonur höfðu veður af þessari samkomu og mótmæltu þessu harkalega, sögðu þessa aðila standa fyrir síðum sem hvetja til mannsals og vændis :S Á mbl.is var tekið dæmi um vefsíðu þar sem átti að vera auðvelt að finna sér konu til að sænga hjá í Reykjavík, ég ætla þó ekki að gefa upp þá slóð. Áhugasamir og forvitnir verða bara að grafa upp þá frétt á mbl.is sjálfir :haha: Hins vegar er ég forvitinn og kíkti auðvitað aðeins inn á þessa síðu og datt inn á nokkrar aðrar í leiðinni, ótrúlegt hvert forvitnin getur leitt mann :lol: Ég var hins vegar ekki lengi að gera mér grein fyrir því að allsstaðar þar sem stóð eitthvað á þessa leið; „Find women to f*** in Reykjavik", að þetta stóð á síðunni þar sem ég er að heimsækja viðkomandi síðu í gegnum íslenskan netþjón. Ég er nokkuð viss um að ef ég færi inn á sömu síðu í gegnum breskan, danskan eða þýskan netþjón að þá stæði einhver önnur borg, væntanlega sú sem næst væri þeim netþjón sem ég væri að tengjast.
Þar að auki stórefast ég um að auðvelt sé að finna sér kvenmann hérlendis í gegnum þessa tengla, en ég ætla mér þó ekki að leggjast í frekari rannsóknir á þessu máli. Þetta er orðið gott í bili 8)
En umræðan um þessa ráðstefnu hefur að mestu snúist um að talsmenn þeirra samtaka sem fórnarlömb kynferðisofbeldis geti leitað til séu á móti þessu skemmtanahaldi hérlendis, rætt hefur verið um að hér muni fara fram myndatökur á klámi og fleiru og hefur verið bent á vefsíðu fyrir þessa samkomu í því skyni, en þar má finna nokkrar myndir af mjög fáklæddum (eru í sokkum og skóm :haha: jú og með húfur) kvenmönnum á húddi jeppa í austurísku ölpunum. Annars eru myndirnar flestar teknar á kvöldskemmtun hópsins í fyrra, þar sem vissulega eru nokkrar fáklæddar dömur en ekkert er sýnt sem ekki má sjást, þó einhverjir kynnu að vera á móti slíkum klæðnaði.
Já, ég skoðaði myndirnar... og hvað með það :klikk:
Forsætisráðherra vor hefur núna látið það út úr sér að það sé illmögulegt að hindra þennan hóp í að koma til landsins, en hann er engu að síður staðráðinn í því að klám fái ekki að ná fótfestu hérlendis, sem er góð afstaða hjá kappanum. Klám á ekki heima hérlendis, en mér finnst samt frekar ósiðlegt að það sé rokið upp til handa og fóta þó hópur fólks sem vinnur í þeim bransa ætli sér að skreppa til Íslands til þess að skemmta sér saman og skoða landið :$
Í þessum hópi er einn Vestur-Íslendingur, sem er netstjóri á einni af þessum síðum, en hann hefur látið hafa það eftir sér að hann hafi farið á sex svona samkomur og að þar sé ekki verið að framleiða klám, heldur hittist fólk eingöngu til að skemmta sér. Þar að auki er það víst frekar dýrt að flytja allan þann búnað sem til þyrfti til framleiðslu (myndavélar, snúrur, ljósabúnaður og fleira) til landsins, hvað þá fyrir svona stuttan tíma. Þá vilji menn halda framleiðslunni í þeim löndum þar sem klám er ekki bannað í lögum, líkt og það er hérlendis. Hann segir að þetta sé einungis hópur fólks sem ætlar að hittast á Fróninu og skemmta sér saman, skella sér á skíði, fara Gullna-hringinn (Gullfoss-Geysir-Bláa lónið) og kíkja á næturlífið í Reykjavík. Í ljósi þeirrar umræðu sem verið hefur í fjölmiðlum hérna undanfarið hafa víst einhverjir hætt við að koma hingað og þessi Vestur-Íslendingur segist í fyrsta sinn skammast sín fyrir uppruna sinn...
En að öðru en þessu klámtali öllu, ætla þó að skella inn nokkrum tenglum á fréttir um efnið fyrir þá sem finnst gaman að pæla í þessu:

http://www.visir.is/article/20070219/FRETTIR01/70219062/-1/frontpage
http://www.visir.is/article/20070219/FRETTIR01/70219069/-1/frontpage
http://www.visir.is/article/20070219/FRETTIR01/102190080
http://www.visir.is/article/20070219/FRETTIR01/102190065

Það var nóg að gera í fótboltanum um helgina, þó aðallega yngri flokkunum þar sem úrslitakeppnir í Íslandsmóti innanhúss fóru fram í gær og á laugardaginn. Sjálfur var ég að dæma á laugardaginn í 2. flokki kvenna í Austurbergi þar sem Breiðablik endaði sem Íslandsmeistari eftir 1-0 sigur á KR í úrslitaleik og 4-3 sigur á Valsstúlkum eftir hörkuspennandi undanúrslitaleik. Þar réðust úrslitin í bráðabana eftir að Valsstúlkur jöfnuðu metin á síðustu sekúndunni í venjulegum leiktíma úr aukaspyrnu og markalausa framlengingu. Blikar nýttu fyrstu tvær vítaspyrnurnar sínar en Valsstúlkurnar brenndu af í annarri spyrnu sinni og Blikar komust því í úrslitaleikinn (það var farið beint í bráðabana).
Ég reyndi svo fyrir mér á nýju sviði í dómgæslunni í gær þegar ég dæmdi ásamt Elíasi handboltaleik í 4. flokki karla, B-lið reyndar (gott að byrja aðeins rólega). Okkur þótti takast vel til og fengum við bara nokkuð góða dóma eftir leikinn :D Eigum örugglega eftir að dæma fleiri leiki miðað við frammistöðuna í gær ;)
Skellti mér svo í ansi skrautlega keiluferð með Svönu í gærkvöldi, það var mikið hlegið svo vægt sé til orða tekið :haha: Þetta var jú að nokkru leiti flipp í gær, en það er nú bara til að gera þetta skemmtilegra 8) Held að það sé öllum hollt að kíkja af og til í keilu, það er ekki spurning ;)

Annars datt mér í hug að enda þetta á frekar væminn hátt ;) Ætlaði að vera löngu búinn að minnast á þessa frétt, en fornleifafræðingar fundu mannabein við fornleifauppgröft við borgina Mantova á Ítalíu fyrir skömmu. Það að mannabein finnist við fornleifauppgröft er kannski ekki svo merkilegt í sjálfu sér, en þessi fundur var mjög sérstakur fyrir þær sakir að þarna fundust tvær beinagrindur.
Í faðmlögum í 5000 ár
Þetta telja fornleifafræðingar vera lengsta faðmlag sögunnar, en beinin eru um 5 til 6 þúsund ára gömul!! Ef þetta er ekki góð leið til að eyða ævinni saman, þá veit ég ekki hvað ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.02.2007 20:13:05 / Andri

Það er ýmislegt í gangi

Já, það er eitthvað með Alcoa og Pepsi Max Lime :| Keypti mér aðra flösku í gær og viti menn, það var líka Alcoa merki í tappanum á þeirri flösku :$ Ég tók svo eftir því að það eru númer í hverjum tappa, spurning hvaða tilgangi þau þjóna? Hef ekki enn rekist á neina útskýringu á þessu uppátæki, efast í raun um að ég muni nokkurn tímann komast að hinu sanna og rétta í þessu máli :haha:

En það er alltaf gaman að fletta í gegnum fréttirnar á netinu, rakst á frétt á Bæjarins besta (www.bb.is) í gegnum B2.is (getur verið gaman að eyða smá tíma þar inni :haha:) um daginn. Fréttin birtist reyndar á mbl.is og er það tekið fram á bb.is (gaman að hafa svona margar síður, ekki satt? ;)). Finnst þó skemmtilegra að segja að fréttin komi frá bb.is 8)

Fréttin kallast Farþegum „yljað" með klámi og hljómar svona (fyrir þá sem nenna ekki að smella á tengilinn :haha:):

Farþegar sem bíða eftir strætó að næturlagi í höfuðborg Búlgaríu, Sofíu, er boðið upp á sýningar á klámmyndum á risaskjáum. Að sögn talsmanns strætó er þetta gert til þess fá farþegana til að gleyma kuldanum úti og tímann til að líða hraðar. Segir hann að ólíklegt sé að börn séu á ferli á þessum tíma sólarhrings en á daginn sjást komu- og brottfarartímar vagnanna á risaskjánum. Á vef Ananova kemur fram að sýningarnar fari í taugarnar á mörgum farþegum og þá sér í lagi mæðrum ungra barna. Jafnframt segja þeir sem kvarta yfir sýningunum að öryggisverðir séu steinhættir að fylgjast með því hvort allt fari vel fram á strætóstoppistöðvunum þar sem þeir eru límdir við skjáinn.
Spurning hvort einhverjir hafi skipulagt frí til Búlgaríu eftir lestur á þessari frétt? ;)

Umhverfismál eru svo alltaf ofarlega í umræðunni, eins og ég hef minnst á áður. Fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, Al Gore, hefur verið að halda fjölmarga fyrirlestra þar sem hann er að vekja athygli á loftslagsbreytingum á jörðinni. Á vef Morgunblaðsins, mbl.is, birtist í kvöld frétt þar sem Al Gore tilkynnti í dag að framundan væri að halda tónleika í öllum heimsálfum (ja, fyrir utan Suðurskautslandið kannski :D) einmitt til þess að vekja athygli á þessu málefni, enda er það Al Gore mikið hjartans mál.
Á þessum tónleikum munu koma fram Red Hot Chili Peppers, Snoop Dogg, Lenny Kravitz, John Mayer, Korn, Black Eyed Peas og fleiri. Munu þeir fara fram 7. júlí undir yfirkskriftinni Live Earth og eiga þeir að standa yfir í heilan sólarhring, hvorki meira né minna! Á mbl.is stendur jafnframt:

Fleiri en 100 hljómsveitir og tónlistarmenn munu koma fram á tónleikunum. Tónleikarnir verða að öllum líkindum haldnir í Shanghai, Jóhannesarborg, Sydney, Lundúnum og borgum í Japan, Brasilíu og Bandaríkjunum.

Þannig að ef maður er staddur í einhverri af þessum borgum þann 7. júlí næstkomandi, er um að gera að skella sér á tónleikana :)
Ég ætla þó að leyfa mér að gera ráð fyrir því að áður en tónleikarnir í London byrja, að fórnarlamba hryðjuverkaárasanna í London fyrir 2 árum verði minnst, en sú árás var einmitt þann 7. júlí 2005. Vonandi endurtekur slíkur harmleikur sig ekki aftur.

Svo munu eflaust einhverjir hafa glaðst þegar þeir rákust á þessa frétt, ja eða umfjöllun... Klámþing verður haldið hér á landi í næsta mánuði. Það er sem sagt framundan að halda samkomu hérlendis dagana 7.-11. mars næstkomandi og mun hersingin gista á Hótel Sögu. Viðbrögðin við þessari frétt hafa verið misjöfn, flestir eru ekki að kippa sér mikið upp við þetta og hótelstýran á Hótel Sögu hefur ekki miklar áhyggjur af þessu, enda er hótelið eingöngu dvalarstaður liðsins þessa daga. Þó segir í fréttinni á mbl.is að hugsanlegt sé að einhverjar myndir verði teknar upp hérlendis... á meðan það er ekki fyrir allra augum finnst mér það allt í lagi, ætla þó ekki að bjóða mig fram sem sjálfboðaliða, hef ekki áhuga á því að taka þátt í því standi. Hver veit þó hvað mun gerast á þeim 150 hótelherbergjum sem bókuð hafa verið fyrir þennan atburð? Mér finnst þó nokkuð líklegt að eitthvað af því verði myndað, hvort það verði á mynda eða myndbandsformi...

Rak augun í enn eina fréttina á mbl.is núna áðan. Farþegar látnir bíða um borð í allt að 11 klukkustundir vegna veðurs. Það geysaði víst hríðarbylur á Kennedy-flugvellinum í New York í gær með tilheyrandi óþægindum fyrir flugfarþega, flugum frestað eða aflýst auk þess að einhverjir þurftu að bíða um borð í flugvél áður en hægt var að hleypa farþegum inn í flugstöðina. Það voru víst ekki eingöngu komufarþegar sem þurftu að bíða um borð í flugvélum, en brottfararvélar voru sendar í röð við flugbrautirnar ef færi gæfist til þess að taka á loft ef veður leyfði.

Þó hefur eitt flugfélag fengið kvartanir vegna þess hversu lengi farþegar urðu að bíða, en bandaríska flugfélagið JetBlue lenti í því að farþegar urðu að bíða í allt að 11 tíma á JFK-flugvellinum í gær. Á vef mbl.is segir:

Bandaríska flugfélagið JetBlue hefur sætt harðri gagnrýni í dag eftir að farþegar með vélum félagsins voru látnir bíða um borð á Kennedy-flugvelli í New York í allt að ellefu klukkustundir í gær á meðan hríðarbylur gekk yfir. Flugfélagið ætlar að bjóða viðskiptavinum sínum sem fyrir þessu urðu endurgreiðslur og fríar ferðir.

Talsmaður JetBlue sagði að tíu flugvélar félagsins sem fóru um Kennedy-flugvöll hafi „tafist umtalsvert“ á meðan farþegar biðu um borð. Ástæðurnar hafi m.a. verið umferðarteppa, vélbúnaður sem ekki virkaði vegna kulda, og viðleitni til að hafa vélarnar reiðubúnar ef veðrinu myndi slota nægilega til að hægt væri að halda áfram.

Til dæmis lenti flugvél úr flugi frá Flórída klukkan tíu í gærmorgun, en farþegarnir máttu dúsa um borð til klukkan sjö í gærkvöldi. Farþegi sem þurfti að bíða um borð í vél á vellinum í átta tíma sagði að ástandið um borð hefði verið orðið fremur nöturlegt. „Það þurfti að opna dyrnar á 20 mínútna fresti bara til að við fengjum súrefni.“

Talsmaður flugfélagsins sagði að ástandið hafi mátt rekja til þess, að vélar sem áttu að fara í loftið voru sendar út á flugbrautir til að bíða ef tækifæri gæfist til flugtaks vegna veðurs, en á meðan myndaðist röð véla sem voru lentar við landgönguhliðin. Síðan hefði ástandið versnað þegar tæki sem notuð eru til að draga vélar upp að hliðunum frusu föst.

Á endanum hafi flestir farþeganna verið fluttir úr vélunum í rútum, en það hafi gengið hægt þar sem tryggja hafi orðið öryggi þeirra.

Þó finnst mér það flott framtak (og nauðsynlegt í raun) að bjóða þeim sem lentu í lengstu biðunum uppá endurgreiðslur og fríar ferðir, þó það komi ekki beint fram hvort þessum farþegum bjóðist bæði að fá ferðina endurgreidda og fría ferð að auki... ég myndi þó ekki kvarta ef ég fengi ferðina endurgreidda og fría ferð að auki fyrir að hafa þurft að dúsa um borð í flugvél í hátt í hálfan sólarhring eftir lendingu :haha:

En svo ég vendi nú kvæði mínu í kross. Ég er á leiðinni á handboltadómaranámskeið núna á næstunni, hef reyndar ekki fengið staðfesta dagsetningu á námskeiðinu frá HSÍ... en það ætti að komast á hreint fljótlega. Er þó ekki að fara einn, því við Elías Már ákváðum að skrá okkur á handboltadómaranámskeið til að fá örlítið meiri hreyfingu yfir vetrartímann þegar fótboltinn er að mestu í dvala. Skellum okkur beint í efsta stig, verðum þá bara að læra eins og brjálæðingar fyrir námskeiðið. Ekki slæmt að komast beint á efsta stig í dómgæslunni í handboltanum, þegar maður er enn að vinna sig upp í fótboltanum. Mun þó taka fótboltann fram yfir handboltann ef það rekast á leikir, sérstaklega ef Futsal-leikir rekast á handboltaleiki...
Við Elli erum svo að fara að dæma leik á sunnudaginn til að undirbúa okkur fyrir námskeiðið, það verður gaman að sjá hvernig það fer, sérstaklega þar sem Elli er að dæma í úrslitakeppni 2. flokks karla í Laugardalshöllinni fyrr um daginn, í fótbolta vitanlega. Sjálfur er ég að dæma í 2. flokki kvenna á laugardaginn, var í sama flokki í fyrra og var þá annar dómarinn í úrslitaleiknum. Spurning hvort það verði líka í ár :haha:

En jæja, held að þetta sé orðið gott í bili. Má frekar reyna að nýta tímann til að kynna mér mannfjöldaþróun í Belgíu 8) Þau eru skemmtileg verkefnin í skólanum ;)

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.02.2007 13:11:08 / Andri

Áróður eða snilldarauglýsing?

Ég ákvað í gær að prófa nýju útgáfuna af Pepsi MAX, sem hefur verið auglýst nokkuð undanfarið (aðallega þó sem kostunaraðili þáttar á Skjáeinum sem ég man ekki hver er í augnablikinu), sem er Pepsi MAX Lime. Hef í sjálfu sér ekkert út á drykkinn sjálfan að setja, vel drykkjarhæfur og ágætur á bragðið. Hins vegar rak ég augun í eitt sem fékk mig til að velta vöngum.
Þegar ég opnaði flöskuna (keypti mér hálfslíters flösku) skoðaði ég í forvitni minni tappann, sem er grængulur á lit (lime-legur) til að sjá hvort eitthvað stæði þar. Viti menn, hvað sé ég í tappanum? Alcoa! :| Alcoa merkið var sem sagt komið í tappann á Pepsi Max Lime drykknum sem ég keypti mér í mesta sakleysi.

Alcoa merkið í tappanum

Nú er mér spurn, er þetta áróður hjá Alcoa eða snjöll auglýsingabrella?
Er Alcoa að reyna að hafa áhrif á fólk með þessu eða er Ölgerðin að reyna að græða nokkra þúsundkalla á nýrri auglýsingatækni?
Í raun finnst mér þetta bara vera fyndið og um leið farið yfir strikið. Í allri þeirri umræðu sem verið hefur undanfarið um álver og virkjanir, finnst mér þetta uppátæki vera fyrir neðan allar hellur. Merkið er vel greinilegt í tappanum eins og sést á myndinni en það er ekki minnst einu orði á Alcoa á umbúðunum af drykknum! Merkið í tappanum er því úr öllu samhengi og tilgangurinn einstaklega óskýr.
Spurning hvort tilgangurinn verði gerður opinber á næstunni, ef nokkurn tímann? Hvort fleiri hafi tekið eftir þessu, eða lent í þessu (vel hægt að orða þetta þannig), veit ég ekki um. Þó freistaðist ég til þess að versla mér venjulega Pepsi Max í dag, í hálfslítra flösku, og þar var ekkert Alcoa merki... :$
Ég geri þó ráð fyrir að ég muni kanna málið aðeins betur með því að versla mér aðra Pepsi Max Lime og kíkja í tappann á þeirri flösku. Drykkurinn er fínn, auglýsingin missir hins vegar svolítið marks, ef auglýsing er á annað borð :haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.02.2007 16:46:13 / Andri

Fótbolti og svifryk?

Stundum getur maður ekki annað en hlegið yfir því sem maður les eða heyrir í fréttunum.
Undanfarið hafa málefni Reykjaneshallarinnar verið í fréttunum, þó aðallega íþróttafréttum, þar sem svifryksmengun er í höllinni. Ekki að það komi mér á óvart að það sé svifryksmengun þar inni, því í Reykjaneshöllinni er gervigras af annarri kynslóð, á meðan nýrri vellir og hallir (Egilshöllin, Fífan, Akraneshöllin, Boginn, Fjarðabyggðahöllin) eru með þriðja kynslóðar gervigras. Meginmunurinn er fólginn í því að 3. kynslóðar gervigrasið er með stærri grasræmum og er mýkra en 2. kynslóðar grasið, sem er harðara og með sandi á milli stránna. 3. kynslóðar gervigrasið er með gúmmí í stað sands.
2. kynslóðar gervigras er hægt að finna á 3 stöðum á SV-horni landsins, að því sem mér skilst. Í Reykjaneshöllinni, í Laugardalnum og í Kaplakrika (þó ég hafi ekki skoðað það gras ennþá). Í fyrra var svo skipt um gervigras á Ásvöllum þar sem 2. kynslóðar gras var fyrir og var orðið ansi slitið, svo mjög að saumarnir voru farinir að rifna upp á nokkrum stöðum. Á Ásvöllum er nú 3. kynslóðar gervigras og munar miklu um.
En svo ég snúi mér nú aftur að ástæðunni fyrir þessari færslu, þá er svifryksmengun í Reykjaneshöllinni langt yfir heilsuverndarmörkum. Ég rakst á frétt á Visir.is áðan þar sem menn þykjast vera komnir með lausn á vandanum, án þess að skipta um gras (sem er auðvitað besta lausnin en kostar pening...).
Sérstök ryksuga er málið! Eða það vilja þeir fyrir sunnan meina að minnsta kosti... :$
Ég verð að viðurkenna að mér finnst þetta frekar ódýr lausn sem á ekki eftir að endast lengi. Sérstaklega ekki ef þeir ætla sér að vera einungis með eina ryksugu... þetta gæti kannski gengið með neti ryksuga í höllinni, þar sem plássið er nú ekki lítið, heill knattspyrnuvöllur innanhúss. Við erum að tala um 6000 m2 gólfflöt (100 m * 60 m) og lofthæðin er lágmark 4 metrar... það eru ófáir rúmmetrar lofts...
Sjálfur hef ég einu sinni komið í Reykjaneshöllina og leist ágætlega á, þangað til ég tók eftir 2. kynslóðar gervigrasinu... það er bara himinn og haf á gæðunum á milli 2. kynslóðarinnar og 3. kynslóðarinnar, því miður. Persónulega tel ég það margfalt þægilegra að hrasa á 3. kynslóðar grasi heldur en 2. kynslóðar grasi, miklu mýkra á nýrra grasinu.

En talandi um boltann, þá er ég að fara að dæma á föstudagskvöldið leik KR og Fylkis í Reykjavíkurmóti kvenna (meistaraflokkur, vitanlega). Það verður ágætis prófsteinn á það hvort ég sé orðinn góður eftir veikindin, en ég kemst alveg í gegnum þennan leik, það veit ég.

En jæja, um að gera að koma sér aftur að verki... þó það sé gaman að velta fréttum dagsins fyrir sér :haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.02.2007 18:38:09 / Andri

Jú, það varð aðeins hvítt yfir um helgina...

Það er ekki öll vitleysan eins, þess sér maður sannanir um gott ef ekki daglega. En hvernig væri lífið án allra þessara atriða ;)
Ákvað til dæmis sjálfur nokkuð nýlega að hressa aðeins uppá þetta blogg mitt, eins og kannski hefur sést... það er, ákvað að vera ekki einungis að tala um hvað ég hef verið að bralla (þó það fylgi oftast nær með).
Það getur verið gaman að fjalla um málefni líðandi stundar, hvort sem þau eru virkilega skemmtileg eða sorgleg, nú eða grátbrosleg :haha:
Þá hef ég gert sífellt meira af því að skoða bloggsíður annarra aðila, minntist til dæmis á hann Ómar Ragnarsson í síðustu færslu minnir mig (eða þar síðustu), en mér finnst mjög gaman og gagnlegt að lesa bloggið hans. Er sammála honum að mestu hvað hugmyndir hans og skoðanir varða. Um að gera að benda aftur á bloggið hans, skiptir máli fyrir náttúruvernd á Íslandi, eða það finnst mér 8)

Var að skoða bloggið hjá henni Svönu, vinkonu minni, sem hún er með í tengslum við verkefni í skólanum (sniðugt verkefni, að blogga um fréttir og koma sinni skoðun fram). Hún fann þessa líka sniðugu frétt á www.mbl.is í dag, þar sem greint var frá krókódíl sem truflaði skólasund.
Hvar gerðist þetta?
Nú, auðvitað í Ástralíu. Grey krakkarnir samt... mæta í sínu mesta sakleysi í skólasund og finna krókódíl í lauginni, og var króksi um 1,6 metri að lengd. Svo var heldur ekkert auðvelt að fanga grey dýrið, því krókódíllinn ákvað að synda niður á botn laugarinnar og setjast þar að, ja... þannig lagað séð :haha:
Eigum við þá ekki bara að skella okkur í sund núna? ;)
Kannski maður verði að fylgja börnunum sínum í skólasund þegar þar að kemur... ganga úr skugga um að enginn krókódíll sé í lauginni áður en krakkarnir stinga sér til sunds :D

Ég hef haft ansi mikið gaman af Harry Potter, bæði bókunum og myndunum (þó bækurnar séu nú nokkuð betri, enda ekki hægt að troða öllu í myndirnar).
J.K. Rowling hefur staðfest að síðasta bókin um galdrastrákinn Harry Potter komi út þann 21. júlí næstkomandi.
Skiptar skoðanir eru þó um þessa útgáfu. Margir hlakka til og geta vart beðið eftir því að geta komist höndum yfir nýjustu og síðustu bókina á meðan aðrir sitja nánast í kvíðakasti og vilja helst ekki að ævintýrinu sé að ljúka.
Sjálfur græt ég það ekki að sagan um Harry Potter sé senn á enda, það verður þó gaman að geta lesið síðustu bókina og séð hvernig sagan endar. Þá á nú eftir að klára síðustu tvær myndirnar, en sú fimmta kemur í bíó þann 13. júlí næstkomandi.
Fann þó frétt á www.mbl.is í dag um þetta mál, en bókabúðakeðja í Bretlandi hefur ákveðið að bjóða uppá áfallahjálp fyrir lesendur Harry Potter ef uppáhalds persóna þeirra í bókunum deyr í síðustu bókinni, en Rowling hefur gefið það upp að ekki muni allir lifa bókina af, sem verður þá bara að koma í ljós.
Merkilegt framtak samt, að bjóða uppá áfallahjálp vegna bókar :D Get ekki alveg varist hlátri, þó sumum finnst þetta vera hin fúlasta alvara ;)
Fréttina má svo finna hér, fyrir þá sem þess óska: Hvað ef Harry Potter deyr?

HM í handbolta kláraðist svo um helgina. Eftir grátlegt tap gegn Dönum í 8 liða úrslitum áttu strákarnir okkar í íslenska landsliðinu sér varla viðreysnar von. Tap þar sem sigurmarkið kemur á síðustu sekúndunni situr lengi eftir.
En frábær leikur strákanna á móti Frökkum, þar sem þeir tryggðu sig áfram í milliriðil, með 2 stig í þokkabót, verður til þess að 8. sætið er alls ekki það slæmt.
Eftir tapið gegn Dönum, var í raun ekki hægt að krefjast neins meira, þó maður hafi ekki alveg séð þennan punkt strax þá. En tapið sat í strákunum og þeir náðu bara ekki að sýna sitt rétta andlit á móti Rússum og Spánverjum.
Í undanúrslitunum áttust svo við Danir og Pólverjar annars vegar og Þjóðverjar og Frakkar hins vegar. Báðir leikirnir voru þrælspennandi, með tvöfaldri framlengingu og flest öllu því sem góður leikur bíður uppá.
Svo fór þó að Pólverjar unnu Dani og Þjóðverjar unnu Frakka. Danir unnu svo Frakka í leiknum um þriðja sætið í gær.
Úrslitaleikurinn var svo á milli heimamanna og Pólverja, þar sem höllin var troðfyllt af 19 þúsund áhorfendum og án efa mikill meirihluti á bandi Þjóðverjanna. Heimamenn byrjuðu vel og voru yfir í hálfleik, en góður kafli Pólverja í seinni hálfleik hleypti heldur betur lífi í leikinn, en þeir náðu að vinna upp 7 marka forskot og minnka í eitt mark og voru bæði í senn óheppnir og klaufar að ná ekki að jafna leikinn.
En Þjóðverjar keyrðu í gegn á seiglunni og höfðu á endanum sigur, 29-24, og urðu því heimsmeistarar í þriðja sinn, og það á heimavelli í þetta skiptið.
Ég tel þá vel að sigrinum komna, þeir stóðu sig vel á mótinu í heild.

Ég fór ekkert í skólann í síðustu viku og var það vel skiljanlegt. Ég var veikur og lá heima í rólegheitum á meðan ég vonaðist til að ná mér. Er þó ekki orðinn alveg 100% hress aftur, því miður... stalst út í gærkvöldi á The Prestige, sem er þrælgóð mynd, mæli svo sannarlega með henni!
Kom svo heim og var kominn með hausverk og læti... ekki beint það sem ég óskaði eftir :S
Svo þurfti ég að sinna ýmsum erindum í dag, kíkja út í banka og út í búð. Keypti loksins síðustu bókina sem ég þurfti fyrir skólann. Trefillinn kom sér vel, þó hann sé kannski ekki sá stærsti :haha: En hann hefur gegnt sínu hlutverki vel í gegnum árinn, gulur og svartur ;) Og nei!!! Þetta er ekki ÍA-trefill :evil: Þessi er þrælmerktur Borussia Dortmund :klikk: Hef átt þennan lengi vel, man ekki einu sinni hvenær eða hvernig ég fékk hann... veit þó að Þorsteinn bróðir á annan eins.

En jæja, þetta ætti að vera orðið gott í bili, þarf að renna yfir grein fyrir mannvistartíma á morgun, um að gera fyrst ég ætla mér að mæta í tímann ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

31.01.2007 15:22:44 / Andri

Jahérna hér...

Jæja, HM-draumurinn er búinn í þetta skiptið. Tap gegn Dönum í hörkuspennandi leik í gær. Jöfunarmark Snorra Steins á síðustu sekúndum venjulegs leiktíma, úr víti, og sigurmark Dana á síðustu sekúndu framlengingarinnar...
Ég held að nánast öll þjóðin hafi verið á nálum yfir leiknum. Það munaði svo litlu í þetta skiptið. Snorri Steinn átti stórleik, skoraði 15 mörk og hélt íslenska liðinu oft á floti í leiknum. Hann var hins vegar allt annað en sáttur í leikslok, sem er mjög skiljanlegt. Hann þvertók þó fyrir að hafa átt stórleik, því það sé ekki stórleikur ef maður tapar!
Sjálfur sá ég um það bil fyrsta korterið í fyrri hálfleik og hlustaði á síðustu 10-15 mínúturnar í seinni hálfleik á Rás 2 og sá framlenginguna. Hefði horft á allan leikinn en vildi koma mér aftur í bæinn.
Fór sem sagt austur í gærmorgun, átti tíma hjá lækni. Það er loksins komið alveg á hreint hvað er að angra mig í náranum, en það er það sama og er að angra mig í hnénu. Læknirinn áttaði sig á því þegar hann raðaði brotunum saman. Vöðvinn á framanverðu hægra lærinu er víst eitthvað óteygður, sem held ég að teygi á vöðvafestunum... eða eitthvað í þá áttina. Hann teygði aðeins á vöðvanum, sem var hrikalega vont! Svo fékk ég teygjuæfingar sem ég á víst að gera 4 sinnum á dag... byrja á því þegar ég hef náð mér af þessari flensu.
Er annars að skána aðeins í hálsinum finnst mér, er ekki alveg jafn háður hálstöflum og síðustu tvo daga, en hitinn er enn til staðar, þó hann sé ekkert hrikalega hár (kannski paratabs-töflurnar haldi hitanum að mestu niðri, enda hitastillandi 8) ), hef verið í kringum 38°C síðan á sunnudaginn.

Fékk útkall í gærkvöldi eftir að ég var kominn í bæinn. Ég fékk sting í magann þegar ég las skilaboðin... Útkall rauður, bíll í Ölfusá...
Ég veit það vel að ég hefði ekki farið, þó svo að ég hefði verið fyrir austan, enda gerir maður ekkert gagn þegar maður er veikur, hefði frekar verið til trafala en gagns.
Sem betur fer sakaði ökumanninn ekki, þó svo að hann hafi verið kaldur og hrakinn þegar honum var náð út úr bílnum og yfir í slöngubát bátaflokks BFÁ sem kom honum í land. Sjá frétt á www.mbl.is um málið: Líðan manns sem lenti í Ölfusá góð.
Spurning hvort það sé ekki kominn tími á vegrið meðfram Árvegi? Jafnvel þó svo Ölfusá hafi nartað talsvert í bakkann í flóðinu í desember.

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
RSS tengill
Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 18507
Klukkan